hof1.net

  • Skip to content
  • Jump to main navigation and login

Nav view search

Navigation

  • Forsíða
  • Um okkur
  • Hafa samband

Search

Ræktunarhryssur

  • Aldís
  • Þokkadís
  • Þruma
  • Vaka
  • Þrá
  • Þrenna

Stóðhestar

  • Davíð
  • Máni
  • Broddi

Til sölu

  • Kaldi

Þruma í heiðursverðlaun

Nú hafa alls 5 afkvæmi verið sýnd undan Þrumu þ.e. Mökkur, Þrá, Höttur, Þrenna og Skuggi, og hafa þau öll hlotið 1. verðlaun. Meðaleinkunn afkvæma Þrumu fyrir byggingu er 8,22 og rétt tæplega 8,30 fyrir hæfileika. Meðaltal aðaleinkunnar afkvæmanna er 8,26 í aðaleinkunn. Hæstu dómar afkvæmanna er frá því að þau voru 5 eða 6 vetra gömul. Þruma fær í aðaleinkunn kynbótamats 118 stig og samkvæmt því uppfyllir Þruma skilyrði til að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

 

Gifting frá Hofi I á landsmót

Gifting frá Hofi I vann sér rétt til þátttöku á landsmótinu í sumar með flottri einkunn. Eiðfaxi birti myndband af Giftingu fyrir stuttu sem sjá má ef smellt er á hlekkinn hér að framan.

Folöld vor 2011

Vona er á nokkrum folöldum þetta árið. Því miður lét Þruma sínu folaldi í apríl og verður hún því folaldslaus í fyrsta sinn frá því hún var 6 vetra. Við eigum von á folaldi undan Þokkadís og Dug frá Þúfu og undan Þrá frá Hofi I og Þristi frá Feti. Þá eigum við von á folaldi undan Vöku frá Hofi I og Ágústínus frá Melanleiti. Þrenna fór líka undir Ágústínus en ekki er allveg ljóst hvort hún sé fylfull. Von er á fyrsta folaldi í kringum 20. maí.

Landsmót 2011

Landsmót hestamanna er vikuna 26. júní til 3. júlí n.k. Fjögur hross eru nú í tamningu og stefnt að því að sýna þrjú þeirra í kynbótasýningu í vor. Þetta eru þrjár hryssur í flokki 5. vetra hryssna og eru Gifting frá Hofi I, Rökkvadís frá Hofi I og Hríma frá Hofi I.

Hof 1 Öræfum | Þ. Örn Bergsson | hestar(hjá)hof1.net| s. 899-1674 | © 2011 hof1.net